Mikið að gera

Ég heyrði það einhvern tíma að þær hugmyndir væru nær undanteknarlaust góðar sem létu mann ekki í friði, jafnvel á nóttunni. Ef það er satt, þá er ég að vinna að góðri hugmynd. Stundum finnst mér það vera yfirþyrmandi hvað ég þarf að gera mikið til að láta verkefnið mitt verða að veruleika, en svo kem ég aftur að hugsjóninni og þá er þetta allt þess virði. Hlakka til að geta uppljóstrað því hvað ég er að gera, en það er ekki langt í það.

Baltasar er að verða 21 mánaða og stundar skæruhernað af miklum móð hér á heimilinu. Hann klifrar, dansar, hoppar og syngur en er oftast nær bara yndislegur. Hann talar mjög mikið (ekki allt skiljanlegt) og skilur nánast allt sem sagt er við hann. Við erum einmitt að fara í sveitaferð með leikskólanum á morgun, hendi mögulega inn myndum af því giggi á næstunni.

Ég hins vegar er búin að vera í sumarfríi og guð hjálpi mér ef ég verð einhvern tíma atvinnulaus til lengri tíma. Ég svaf til 4 í dag, skál fyrir því! En á móti kemur er ég fremur dugleg að klippa og vinna að stefnumótun fyrir litla fyrirtækið mitt. Skólinn er búinn að vera æði, náði öllum fögum með glans og er þar með búin með 1/3 af grunnnáminu mínu (3 n í því?) Ég þarf að skipta um mynd í þessum header hér fyrir ofan, kominn júní og allt að gerast!

Mjá

BB

Valgarður 2009

Mmmm kæfa

Return of the blogers

Heimsendir nálgast….

Guðjón uppáhalds og afmælis